Melbourne

Friday, June 10, 2005

Júní

Framhald af almennu túrhestaprógrammi ... Fórum á Great Ocean Road síðasta laugardag. Ég verð bara að viðurkenna að þetta var ekki síðri bíltúr svona í annað sinn. Þessi leið er alveg ótrúlega falleg og alltaf eitthvað nýtt að sjá. Gaman að segja frá því að allt landslag var miklu grænna þegar maður keyrði leiðina að vetri til miðað við þegar við fórum í sumar!! Stoppuðum á alveg yndislegum stað til að borða nesti niðri við litla á sem var við það að renna út í sjó, alveg uppi við grænar hæðir sem teygðu sig allt í kringum okkur. Með fallegri stöðum sem ég hef komið á. Verð að láta fljóta með smá skemmtisögu af Maroni sem brá sér afsíðis til að létta af sér... þar sem hann stóð (einn að hann hélt) svolítið til hliðar við okkur heyrði hann mikið lófaklapp, hróp og blístur. Uppi á hæðinni var sem sagt útsýnispallur og þar stóðu "kvenfélagskonur úr Borgarfirðinum" og fögnuðu ákaft!!

Við sáum samt endanlega núna að einn dagur er ansi tæpur fyrir þessa ferð... svo nú er það sko alveg ákveðið að þegar næstu gestir mæta á svæðið verður pantaður sumarbústaður á miðri leið svo hægt verði að slaka á yfir bjór og Barbie í regnskóginum áður en maður skoðar seinni helming leiðarinnar án þess að vera í kappi við sólina.

Á sunnudaginn skelltum við okkur í smá verslunarleiðangur með gengið... það gekk frekar vel bara, afrakstur fyrir ofan meðallag! Á eftir fórum við niður í St. Kilda of fengum okkur að borða. Fórum á mjög kósý stað með meiriháttar góðum mat, alveg pottþétt að við munum fara þangað aftur.

Ég fór svo með Maroni að vinna á mánudeginum enda Thelma Kristín í leikskólanum. Anna Ólöf og Kristófer voru hér heima við. Kristófer loksins kominn með bolta og fótboltamark og leiðin lá auðvitað bein út í park á æfingu. Reyndar endaði leiðangurinn með því að boltinn lenti inni í garði hjá nágrönnunum og voru örlög hans óráðin langt fram á næsta dag þegar hann komst loks í öruggar hendur á ný.

Við gerðum heiðarlega tilraun til að skella okkur á hverfispöbbinn á mánudagskvöldið. Kristófer sat hjá Thelmu eftir að hún var sofnuð en ekki vildi betur til en svo að búið var að loka pöbbnum okkar (sem er hér úti á horni). Við tókum sénsinn og löbbuðum yfir í næstu götu þar sem við fundum opinn pöbb.. kvöldið var nú ekkert sérstakelga spennandi, fengum okkur einn drykk og fórum heim! En gaman samt. Fórum svo aftur á miðvikudagskvöld - fyrr í þetta sinn (um 9 í stað 10 áður!! ;o)) Þá var sko opið hér hjá nágrannanum og mikil stemning. Hverfispöbbinn okkar ætti að vera í heimsmetabók Guinnes sem minnsti bar í heimi... hann er minni en stofan í Veghúsunum, ég er ekki að grínast!! Ég var alveg handviss um að fólkið á næsta borði væri frá Quebec, fanns franskan þeirra vera þannig en loksins þegar ég þorði að spyrja þau voru þau frá Marseille!! Fúlt! Þau sögðu reyndar að mállýskurnar á þessum tveimu stöðum þættu mjög líkar - svo ég er ekki alveg dottin úr æfingu!

Á þriðjudaginn löbbuðum við niður á strönd.. eða ég labbaði sem sagt. Kristófer og Anna Ólöf skautuðu og Thelma Kristín fór á hlaupahjóli sem hún er með í láni á dótasafninu. Sátum á ströndinni í góðu yfirlæti með skóflur og fötur og krakkarnir léku sér á meðan Anna Ólöf (og Kristófer líka að hluta) renndi sér á línuskautum eftir standlengjunni. Held samt að Ástralirnir hafi haldið að við værum rugluð að liggja á ströndinni um miðjan vetur! En það var hátt í 20 stiga hiti úti svo okkur fannst þetta nú ekkert svo klikkað. Kannski ekki bikiniveður en okkur leið vel á peysunni.

Ég fór svo aftur að vinna á miðvikudag og Anna og Kristó skelltu sér í bæinn þar sem Anna Ólöf var að skoða myndavélar.... frekar rólegur dagur sem sagt fyrir utan ferðina á pöbbinn um kvöldið sem áður var getið.

Í gær og í dag höfum við Anna Ólöf svo dregið krakkana með okkur í skoðunarferðir um helstu háskóla bæjarins. Fórum í Melbourne University í gær og Monash University í dag. Erum báðar að láta okkur dreyma um að fara í nám á næsta ári.. vonandi að það rætist.

Planið fyrir helgina er eftirfarandi: Á morgun ætlum við að fara á fótboltaleik á Olympiuleikvangi Melbæinga og rölta svo í bæinn á eftir og á sunnudag ætlum við til Ballarat.. The Goldfields. Ætlum að skoða þar gamla bæi frá gullæðinu sem var hér um 1850 og jafnvel freista gæfunnar sjálf. Við ætluðum okkur að leigja sumarbústað þarna uppfrá og vera alla helgina en föttuðum ekki nógu snemma að drottningin á afmæli á mánudaginn og þá fá allir frí (eigum við að ræða þetta við Óla??)... svo þetta er löng helgi og allir sumarbústaðir löngu upp pantaðir þegar við fórum loksins á stjá. Svo við verðum snemma á fótum á sunnudag svo við fáum sem mest út úr deginum.

Verðum svo heima við á mánudaginn en fáum íslensku vinkonum mína í mat með litla strákinn sinn. Ætlum líka að fara inn í Albert Park á golfvöllinn og slá úr fötu.. já gleymdi að segja ykkur að við hjónakornin erum komin á golfnámskeið. Fórum tvo morgna í síðustu viku og eigum enn fjóra tíma eftir. Heimavinnan er sem sagt að slá úr einni fötu fyrir næsta tíma. Okkur finnst þetta alveg rosalega gaman og hlökkum mikið til að geta farið að rölta um golfvellina hér. Næsta ferð á Great Ocean Road verður með viðkomu á golfvellinum í Anglesea þar sem kengúrurnar rölta frjálsar um völlinn!!

Svona var sem sagt síðasta vikan hjá okkur... mikið að gera á stóru heimili og allt það. Læt líka fylgja með eitt gullkorn a la Thelma Kristín.. Sú stutta hefur nefnilega mikið verið að leika sér í Barbie undanfarna viku (sem hún gerir nú reyndar ekki oft) en þegar ég sat inni í herbergi hjá henni einn daginn sagði hún mér í óspurðum fréttum um hana Barbie: "þegar Ken er búinn í tölvunni ætla þau að gifta sig"... það læra svo sannarlega börnin sem fyrir þeim er haft! Það var auðvitað eins og við manninn mælt þegar ég leit inn í Barbiehúsið að Ken sat við tölvuna á meðan Barbie beið!! Skil ekki hvaðan hún hefur þetta ;o)

Hætt í bili. Læt vonandi heyra í mér áður en við förum heim. Setti nýjar myndir inn á transistorinn (www.transistor.tv/gallery) í vikunni og von er á fleirum eftir helgina.

Kveð héðan úr grenjandi rigningu
Unnur

Friday, June 03, 2005

Kátt í koti

Halló halló

Hef nú verið löt að blogga undanfarnar vikur enda líf og fjör í kotinu. Kristófer og Anna Ólöf mágkona mættu sem sagt í heimsókn á mánudagsmorgni fyrir tæpum 2 vikum. Þau voru auðvitað ansi flugþreytt fyrstu dagana eftir langt ferðalag og við tókum lífinu með ró. Fórum í göngutúra um næsta nágrenni á milli þess sem ferðalangarnir lögðu sig. Flugþreytan (þegar maður flýgur í þessa átt alla veganna) lýsir sér þannig að fólk vaknar eldsprækt fyrir allar aldir (svona um fimm leytið) og er svo orðið þreytt upp úr hádegi. Þá hefst baráttan um að halda sér vakandi til að rétta úr kútnum og hún stendur yfirleitt fram undir kvöldmat en þá verður maður að játa sig sigraðan og lognast út af. Smám saman hangir maður svo lengur á daginn og sefur þar af leiðandi lengur á morgnana.

Eftir tvo daga hættum við Anna Ólöf okkur reyndar í verslunarferð á meðan Kristófer fór með pabba sínum í vinnuna. Árangurinn var ágætur en betur má ef duga skal! Fórum því á fimmtudeginum á Queen Victoria Market með krakkana og bættum skorið aðeins þar.

Á laugardeginum fórum við svo með allt gengið í sund í stóra innilaug sem er hér stutt frá. Á eftir fórum strákarnir á fótboltaleik (ástralskur fótbolti) og við stelpurnar á magadans-workshop (þetta er svo kynjaskipt að það jaðrar við að vera sexismi!)

Á sunnudaginn fórum við til Phillip Island að skoða kóalabirni og mörgæsir (ef þið vijið nánari lýsingar er þær að finna í fyrra bloggi :o) ) Það var mjög gaman.. kóalabirnirnir miklu meira vakandi núna en síðast.. og við sáum líka fleiri kengúrur... og fleiri mörgæsir en síðast, svo þetta var góð ferð. Ég held líka að gestunum hafi þótt gaman að sjá þetta - við tókum fullt af myndum sem verða settar á vefinn innan skamms.

Ég fór með Maroni í vinnuna á mánudag og miðvikudag á meðan Thelma Kristín var í leikskólanum. Kristófer og Anna Ólöf notuðu tímann og skelltu sér í dýragarðinn á mánudeginum og á sædýrasafnið á miðvikudeginum. Mér skilst að eftir ferðina í dýragarðinn í Melbourne (sem er einn af þeim bestu í heimi) hafi ferðin á sædýrasafnið nú ekki staðist væntingar.

Í gær tókum við lestina yfir í hinn endann á St.Kilda og löbbuðum eina mestu tískugötu Melbourne heim aftur (en hún liggur einmitt næstum beint heim til okkar!) Við kíktum nú lítið inn í búðirnar í þetta sinn enda báðir krakkarnir með okkur en vonandi fáum við tækifæri til að skoða þær nánar. Í gærkvöldi passaði Anna Ólöf svo fyrir okkur hjónakornin og við skelltum okkur út að borða og í bíó. Voða lúxus að hafa svona barnapíu.. við höfum auðvitað ekki komist barnlaus út fyrir hússins dyr síðan við fluttum hingað, enda kom nú svolítið á þá stuttu þegar við sögðumst ætla út... en hún var fljót að jafna sig enda félagsskapurinn góður.

Við gamla settið fórum á TGI Fridays og fengum fínan mat.. en lélega þjónustu! Sáum svo nýju Adam Sandler myndina og hlógum okkur máttlaus (þau söguþráðurinn hafi verið slakur a la Adam Sandler). Þetta var voða fínt bíó sem við fórum í... númeruð sæti og allt! Við höfum ákveðið að nýta pössunartækifærið enn frekar og höfum skráð okkur á golfnámskeið tvo daga í viku þar til við förum heim. Við verðum sem sagt til í slaginn á Flúðum í sumar!

Röltum svo um í miðbæ Melbourne í dag og fórum m.a. að skoða konunglega grasagarðinn hér í borg. Ofsalega fallegur garður sem ég hlakka sko til að rölta um í vor þegar allt verður í blóma.

Planið fyrir morgundaginn er svo Great Ocean Road (þið getið flett upp á fyrra bloggi fyrir nánari smáatriði!!) Við vorum að hugsa um að gista á leiðinni og taka okkur tvo daga í ferðina minnug þess að hún var strembin síðast en hættum við á síðustu stundu enda veðrið ekki jafn gott og því hætt við að göngutúrarnir verði styttri og við verðum fljótari í förum. Við eigum því sunnudaginn til góða og erum ekki alveg búin að ákveða hvernig við nýtum hann.

Thelma Kristín er auðvitað alveg himinlifandi yfir gestagangnum hjá okkur. Henni finnst æðislegt að hafa Kristófer og Önnu Ólöfu hér og ég myndi giska á að meðalhávaðinn í barninu hafi aukist um ca 30 dB enda brói mættur til að gasla í henni. Kærkomin tilbreyting eftir að hafa verið með mömmu gömlu að púsla og teikna í þrjár vikur! Hún fer enn á leikskólann tvisvar í viku og starfsfólkið þar er ofsalega ánægt með hana, segir hana vera orðna ansi lunkna í enskunni.

Læt fylgja með eitt gullkorn frá dömunni. Hún kom heim af leikskólanum um daginn, upprifin af sjúkrahúsinu sem þar hafði verði sett upp (með sárveikum böngsum og dúkkum), þar var meira að segja apótek með fínni afgreiðslu og svona "borgara" til að borga fyrir meðalið - þetta hét nú bara búðarkassi þegar ég var lítil!

Jæja, nú er klukkan orðin margt fyrir okkur sem ætlum að taka daginn snemma á morgun. Held ég láti þessar línur duga í bili. Myndir koma fljótlega... ég lofa.

Bið að heilsa í bili
Kveðja
Unnur Gyða


 

Website Counter