Afmæli.. og fleira
"Selamat pagi" segir dóttir mín á hverjum morgni þegar hún vekur mig og brosir út að eyrum. Hún lærir nefnilega indónesísku í skólanum og er farin að slá um sig með nokkrum orðum! Hún er annars hæstánægð í skólanum, hlakkar til að fara á hverjum morgni. Í morgun fór hún með bangsann sinn með sér því fyrirhuguð er "teddy bear picnic" í hádeginu með vinunum úr 6. bekk. Allir 5 ára nemendur eiga "vin" í 6. bekk sem fylgist með þeim í skólanum. Frábær hugmynd að mínu mati, þið getið rétt ímyndað ykkur hvað það er spennandi að vera 5 ára og eiga 11 ára vin.. verður ekki mikið betra.
Talandi um að vera 5 ára. Stóri dagurinn á morgun.. að vísu tókum við forskot á sæluna og héldum afmælisveislu á sunnudaginn var. Thelma Kristín bauð nokkrum vinkonum úr skólanum og skemmtu þær sér konunglega. Þetta var nú svolítið skrýtin veisla án ykkar allra... bara 5 börn að hafa ofan af fyrir - pís of keik, bara! Reyndar ágætis fyrirkomulag að hafa bara krakkana, foreldrarnir komu svo og fengu sér kaffibolla á eftir. Með þessu móti hefur maður tíma til að sinna aðalgestunum í stað þess að henda þeim upp í herbergi á meðan maður serverar kaffi fyrir eldri kynslóðina.
Litli sælgætisgrísinn minn er annars voða upptekin af orkubókinni þessa dagana og passar vel hvað hún setur ofan í sig. Bræddi okkur alveg í gegn þegar við skrifuðum undir "samninginn" við hana. Við sögðum að hún mætti óska sér einhvers sem hún svo fengi ef hún yrði dugleg að borða hollan mat í heilan mánuð. Daman hugsaði sig vandlega um og sagði svo: "Mig langar mest í lítinn engil til að hjálpa fátækum börnum í Afríku"!! Er hún ekki sætust??!! Við höfum lengi verið að tala um að "taka að okkur" barn í gegnum áströlsk samtök sem eru mjög virt hérna. Við urðum því ásátt um það að ef Thelma Kristín heldur samninginn munum við finna 5 ára barn í Afríku til að senda peninga til. Held að það geri krökkum gott að fylgjast með jafnöldrum sínum sem hafa það ekki jafn gott, þetta verður spennandi verkefni.
Okkur fannst nú Íþróttaálfurinn farinn að hafa fullmikil áhrif þegar við sátum á Subway á laugardaginn. Röðin lá framhjá borðinu þar sem við sátum og aftastur stóð ungur, hraustur, maður í ermalausum bol. Thelma Kristín horfði vel og lengi á manninn, hallaði sér svo yfir að mér og hvíslaði: "Mamma, sjáðu hvað maðurinn er með fallega vöðva!!!"
Það velta alveg upp úr henni gullkornin þessa dagana, verst maður gleymir helmingnum. Mörg eru tilkomin vegna tungumálaruglings.. eins og að bíða fyrir hlutunum en ekki eftir þeim (e. wait for) og stundum ruglast hún aðeins á íslensku orðunum eins og þegar hún sagði "mamma, halinn á mér fer alltaf upp úr skónum"... átti sem sagt að vera hællinn!
Á sunnudaginn var hún svo að drekka bollasúpu og gekk afskaplega hægt. Ég var margbúin að setja kalt vatn í bollann, súpan var rétt hlandvolg en litli kettlingurinn minn rétt dífði tungunni ofan í. Ég var orðin heldur pirruð, tók gúlpusopa og sagði:"Blessuð, láttu ekki svona, þetta er ekkert heitt", sú stutta horfði á mig sorgaraugum og sagði: "Mamma, hjartanu mínu líður bara ekki eins og hjartanu þínu"!!
Jæja, nóg komið af Thelmusögum. Lítið annað að frétta héðan úr síðsumrinu. Veðrið hefur verið heldur leiðinlegt, rétt um 20 gráðu hiti - en spáir hlýnandi, sem betur fer. Dýralífið í miklum blóma og pöddulífið á heimilinu í samræmi við það. Er nú orðin heldur róleg yfir þessum hlutum sem betur fer, tel það ekki eftir mér að myrða nokkrar köngulær við og við. Þó brast nú þolinmæðin þegar ég fékk óvæntan gest upp í rúm til mín um helgina. Lá hálfsofandi í örmum ástkærs eiginmanns míns og taldi hann vera að strjúka á mér upphandlegginn... brá nú heldur þegar hann strauk niður alla síðuna og langt niður á læri... vissi ekki til þess að hann væri svona fingralangur. Fannst þetta heldur skrýtið, sparkaði kallinum fram úr og skipaði honum að kveikja ljósin. Haldiði ekki að þetta hafi verið kakkalakki sem skreið eftir síðunni á mér!!!!!!! Öðru vísi mér áður brá!!!!!!!!!! Um það bil þarna dreg ég nú mörkin.
Við teljum okkur þó vita hvaðan kauði kom því Maron var að kaupa sér nýja skó og það síðasta sem ég gerði áður en ég skreið upp í var að opna skókassann til að kíkja á þá. Það var víst frétt um það í blöðunum um daginn að óvenju mikið væri af kakkalökkum inni í húsum þessa dagana af því það var svo heitt og rakt í janúar. Við höfum verið að fá einn og einn inn til okkar, alltaf á sama tíma og við tökum á móti einhverjum kössum eða dóti úr vöruhúsum svo það er greinilegt að við erum að fá þetta í kaupbæti, alveg óumbeðið.
Jæja, kveð í bili. Þarf að koma mér niður í bæ og ganga frá flugmiðum. Kristófer ætlar að fá að fljóta með mömmu og pabba til okkar í apríl og vera hjá okkur þangað til við förum heim í lok maí... gaman gaman!
Knús
Unnur Gyða

3 Comments:
Góðan daginn Ástralía!!!
Og innilega til hamingju með afmælið Thelma Kristín. Vonum að þú hafir átt góðan dag (hann er nú víst að kveldi kominn þín megin á hnettinum!). Bið kærlega að heilsa mömmu og pabbi.
Knús og kossar,
Soffía, Selma og Ingi
By Anonymous, at 11:57 PM
Sæl elskurnar og til hamingju með afmælið Thelma Kristín ! Gott fyrirkomulag á afmæli, fámennt en góðmennt. Alltaf gaman að lesa bloggið ykkar, skemmtilegar sögur og skemmtileg uppátæki :D
Biðjum að heilsa hinumegin á hnöttinn og sendum stórt knús til allra kakkalakka :D
kv. Fjóla, Maggi og Mikael
By Anonymous, at 10:10 AM
Elsku Thelma til hamingju með afmælið, þú ert orðin svo stór og mikil pæja! Mikið er gaman að fá að fylgjast með ykkur hérna og hlakka ég líka til að hitta ykkur í sumar þegar þið komið heim.
Hafið það gott þarna hinum megin :)
Sirrý og co.
By Anonymous, at 8:24 AM
Post a Comment
<< Home